föstudagur, nóvember 15, 2019

Börnum teflt fram til að stöðva gagnrýni

Þeir sem eru valda- og græðgismegin í lífinu keppast við að biðja fjölmiðla og almenning að hætta að tala um gagnrýniverða atburði vegna þess að börn þeirra sem málinu tengjast kunni að líða fyrir umræðuna. (Athugið: þetta er ekki sama fólkið og hefur áhyggjur af börnum flóttamanna og hælisleitenda.)

Gunnari Braga Sveinssyni er umhugað um börn Samherjamanna. Þau líði fyrir umræðuna. Ekki alls fyrir löngu talaði einn fjölmiðillinn við afkomendur Klaustursmanna, þar af son Gunnars Braga sem eðlilega hafði þótt óþægilegt að heyra skoðun almennings á föður sínum. Hann missti þó samúð lesenda þegar hann tók sérstaklega fram hve ljót orð hefðu verið látin falla um Klausturdóna.

Sonur helsta höfuðpaurs Samherja, Baldvin Þorsteinsson sonur Þorsteins Más Baldvinssonar (sem nú hefur „stigið til hliðar tímabundið“), er eitt þessara barna (ég veit ekki hver hin eru) sem Gunnari Braga verður hugsað til á þessum erfiðu tímum. Í umfjöllun Stundarinnar um Samherja var birt mynd af Baldvin þar sem hann er í hópi innfæddra kvenna í Namibíu. Sömu mynd var varpað upp í Vikunni með Gísla Marteini nú í kvöld en einnig má sjá hana og nokkrar aðrar sama eðlis í Wikileaks skjölunum. Myndirnar sýna nýlenduhugsunarhátt Samherjamanna nokkuð augljóslega. Ég ætla ekki að nefna viðhorfið til kvenna.

Trump notar sér það nú til varnar að segja að fjölskylda sín, og á þá væntanlega við afkomendur sína, líði fyrir umræðuna um hann. Það eru einmitt til myndir af sonum hans á villidýraveiðum, sitjandi fyrir hróðugir með dýrum sem þeir hafa drepið sér til skemmtunar. Myndin sýnir svipað viðhorf og myndin af Samherjasyninum: Sjáið yfirburði okkar yfir náttúru Afríku og fólkinu sem þar býr.

Efnisorð: , , , , ,

miðvikudagur, nóvember 13, 2019

Ýmislegt var vitað um Samherja en ekki skánaði það

Ég hélt að ég vissi ýmislegt um Samherja og Afríkuútgerð þeirra en uppljóstranir Kveiks í þættinum í gær komu mér mjög á óvart. Enn bættist í upplýsingaflóðið um atferli Samherja í viðskiptum við Afríkuþjóðir þegar Stundin var borin í hús í morgun, umfjöllunin nær yfir 40 blaðsíður. Ég á langt í land með að ná að lesa það allt. Þess í stað rifjaði ég upp hvað hefur áður birst hér á blogginu um Samherja. Alloft er það í samhengi við aðrar útgerðir eða hagsmunasamtök þeirra sem eitt sinn Landssamtök íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), nú Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) sem oftsinnis koma við sögu á blogginu. Þar af hefur Samherji verið sérstaklega nefndur hér:

Maí 2012 í tilefni af auglýsingum LÍU,
„andstöðu þeirra við kvótafrumvarpið, hvernig kvótinn hefur hingað til fært þeim hagnað og ekki síst dómsdagsauglýsingarnar þar sem heimsendi (og helför) er spáð verði frumvarp ríkisstjórnarinnar að veruleika.“
Júní 2012, sjómannadagur í skugga hótana LÍÚ þar sem er minnst á rányrkju Samherja við strendur Afríku og vörslu gróðans í skattaskjólum. (Því miður eru allir hlekkirnir í bloggfærslunni dauðir, en einn þeirra vísaði á þessa úttekt Inga Freys Vilhjálmssonar sem birtist í DV í maí 2012.)

Júní 2014, hér lýsir blogghöfundur samúð með baráttu smælingja á borð við Þorstein Má Baldvinsson Samherjaforstjóra. (Fyrsti hlekkurinn er dauður en vísaði á framangreinda frétt Inga Freys; næsti hlekkur er virkur og síðustu tveir óvirkir en virðast vísa á efnislega sömu frétt og hann.)

Árið 2014 minnst á Samherja í bloggi sem fjallaði um arðgreiðslur og veiðigjöld. Þar kom fram að: „Greidd veiðigjöld Samherja náðu 44 prósentum af arðgreiðslunum.“

Í febrúar í fyrra var rætt um bæjarstjórnarmenn á Akureyri og Dalvík sem fóru í skemmtiferð til Þýskalands í boði Samherja. Enginn þeirra tengdi það neinskonar spillingu.

En áhugaverðast var að rifja upp eftirfarandi.

Þegar Gunnar Bragi Sveinsson var utanríkisráðherra lagði hann Þróunarsamvinnustofnun Íslands niður og var hún sameinuð utanríkisráðuneytinu (breytingin sem tók gildi 1. janúar 2016 var mjög umdeild).

Þegar Gunnar Bragi var að reyna að afla þessari hugmynd sinni fylgis, svo snemma sem haustið 2014, var skrifað blogg. Þar kemur fram nöturleg framtíðarsýn Jóns Kalmans rithöfundar sem virðist hafa haft — ef ekki pata af því hvað Samherji var þá þegar að bralla í Namibíu — en allavega góða innsýn í hvernig íslensk fyrirtæki gætu notfært sér „tækifærin“ í Afríku.

„Að auki, eins og Jón Kalman Stefánsson rekur í grein undir titlinum „Eru Íslendingar kaldynd og sjálfhverf þjóð?“, þá vill Gunnar Bragi utanríkisráðherra leggja Þróunarsamvinnustofnun Íslands niður og sameina ráðuneyti sínu. Það er auðvitað í nafni einhverrar hagræðingar. En Jón Kalman afturámóti kemur með svo skuggalega skýringu á því hvað sé þarna á seyði að mann rekur í rogastans. Hann segir að fullyrt hafi verið í sín eyru að hér sé á ferðinni
„vilji til að nýta þróunarsamvinnu í því skyni að koma íslenskum fyrirtækjum á framfæri í Afríku, þar eru nefnilega mörg tækifærin. Ég verð nú að segja að þótt ég hafi sæmilegt ímyndunarafl, hafði mér ekki dottið í hug að íslenskur ráðamaður gæti upphugsað jafn kaldrifjaða áætlun.“
Ég segi eins og Jón Kalman, sem þó hefur sennilega fjörugra ímyndunarafl en ég, að mér hafði ekki dottið í hug að utanríkissráðherra ætlaði að nota uppbyggingu þróunarsamvinnu í þágu íslenskra fyrirtækja í útrás. En ef rifjaðar eru upp ránsveiðar Samherja við Afríkustrendur þá á þetta auðvitað ekki að koma manni á óvart.“
Ekki veit ég hvort önnur fyrirtæki en Samherji hafa herjað á fyrrum þróunarsamvinnulönd Íslands. Vonandi er Samherji sér á báti með þá svívirðu sem þeir hafa hingað til komist upp með gagnvart Namibíu. Eða eins og segir í fyrirsögn bloggpistilsins: Kannski ekki allir Íslendingar en sannarlega of margir og þeir hafa of mikil völd og ítök.

Efnisorð: , , , , , ,

mánudagur, nóvember 11, 2019

Dómstólar elska nauðgara

Hvað þarf til að refsirammi fyrir kynferðisbrot sé fullnýttur? Nei, röng spurning. Hvað þarf til að karlmenn séu yfirhöfuð dæmdir fyrir nauðganir? Hvað þarf til að ofbeldi karla gegn konum sé tekið alvarlega af dómstólum? Allt er reiknað þeim til góða. Neiti karlmenn staðfastlega eru miklar líkur á að þeir sleppi við refsingu. Ef þeir neita hreinlega að tjá sig er það sterkur leikur því þá má konan ekki nema mismæla sig til að vera orðin ótrúverðugri en þögli ofbeldismaðurinn. Játi karlmaður nauðgun — JÁTI — þá er 2ja ára fangelisdómur styttur niður í 3 mánuði í fangelsi og 21 mánuð á skilorð. Skilorðið er vegna þess hvað hann var ljúfur og góður að játa. Ljúfi og góði nauðgarinn sem fær verðlaun fyrir góða hegðun.

Hér kemur ráðlegging.

Karlar koma aldrei til með að hætta að nauðga konum. (Eða öðrum körlum eða börnum.) Verum ekki að flækja líf þeirra að óþörfu, á fyrir hættum að draga þá fyrir dómstóla. Það hefur hvorteðer ekkert uppá sig.

Þetta er þjóðfélag sem samþykkir að karlar nauðga konum.

Efnisorð: , ,