föstudagur, nóvember 15, 2019

Börnum teflt fram til að stöðva gagnrýni

Þeir sem eru valda- og græðgismegin í lífinu keppast við að biðja fjölmiðla og almenning að hætta að tala um gagnrýniverða atburði vegna þess að börn þeirra sem málinu tengjast kunni að líða fyrir umræðuna. (Athugið: þetta er ekki sama fólkið og hefur áhyggjur af börnum flóttamanna og hælisleitenda.)

Gunnari Braga Sveinssyni er umhugað um börn Samherjamanna. Þau líði fyrir umræðuna. Ekki alls fyrir löngu talaði einn fjölmiðillinn við afkomendur Klaustursmanna, þar af son Gunnars Braga sem eðlilega hafði þótt óþægilegt að heyra skoðun almennings á föður sínum. Hann missti þó samúð lesenda þegar hann tók sérstaklega fram hve ljót orð hefðu verið látin falla um Klausturdóna.

Sonur helsta höfuðpaurs Samherja, Baldvin Þorsteinsson sonur Þorsteins Más Baldvinssonar (sem nú hefur „stigið til hliðar tímabundið“), er eitt þessara barna (ég veit ekki hver hin eru) sem Gunnari Braga verður hugsað til á þessum erfiðu tímum. Í umfjöllun Stundarinnar um Samherja var birt mynd af Baldvin þar sem hann er í hópi innfæddra kvenna í Namibíu. Sömu mynd var varpað upp í Vikunni með Gísla Marteini nú í kvöld en einnig má sjá hana og nokkrar aðrar sama eðlis í Wikileaks skjölunum. Myndirnar sýna nýlenduhugsunarhátt Samherjamanna nokkuð augljóslega. Ég ætla ekki að nefna viðhorfið til kvenna.

Trump notar sér það nú til varnar að segja að fjölskylda sín, og á þá væntanlega við afkomendur sína, líði fyrir umræðuna um hann. Það eru einmitt til myndir af sonum hans á villidýraveiðum, sitjandi fyrir hróðugir með dýrum sem þeir hafa drepið sér til skemmtunar. Myndin sýnir svipað viðhorf og myndin af Samherjasyninum: Sjáið yfirburði okkar yfir náttúru Afríku og fólkinu sem þar býr.

Efnisorð: , , , , ,