fimmtudagur, apríl 26, 2012

Hugmynd sem má útfæra svo miklu betur

Ýmislegt getur valdið streitu í daglegu amstri og margir hafa þörf á að fá útrás með einum eða öðrum hætti, segir í frétt á vef Ríkisútvarpsins. Nú er hægt að leigja sér tíma í herbergi þar sem má brjóta allt og bramla.
Þeir sem hætta sér inn í „herbergi reiðinnar“, eins og það er kallað, þurfa að klæða sig í hlífðarfatnað og greiða staðlað tímagjald. Þeir fá svo 5-25 mínútur til að fara á límingunum og skeyta skapi sínu á innanstokksmunum.

Mér finnst þó enn eitthvað vanta í þetta dæmi. Það ætti endilega að prófa að setja kéllingu þarna inn og leyfa körlum að berja hana (má bæta við konum og herbergjum eftir því sem eftirspurn eykst). Það er jú staðreynd að karlar þurfa að fá útrás — og ekki bara á innanstokksmunum. Þetta myndi eflaust draga mjög úr heimilisofbeldi, því eins og allir vita er fordæmi fyrir því með vændið: karlar svoleiðis snarhætta að misbjóða konum kynferðislega og nauðga þeim ef þeir fá bara nógu mikið að ríða ókunnugum (ó) viljugum konum sundur og saman.*

Það er samt hætt við að einhverjar feministakerlingar myndu setja útá þetta því þær yrðu auðvitað abbó yfir að karlinn sé hættur að dangla í þær, en eins og allir vita þá fíla kéllingar að láta dangla svoldið í sig.

Það hlýtur að vera markaður fyrir þetta hér á landi. Bara spurning um að bretta upp ermarnar og kýla á það.

___
* Það yrðu auðvitað fyrst og fremst mjög viljugar konur sem létu berja sig, nóg af þeim til, en það er engum að kenna ef einhverjar óviljugar slæðast með og ekki hægt að ætlast til að karlar slaki á kröfu sinni um að fá að berja kéllingar bara útaf þvíað einhverjir (aðrir) vondir menn neyði konur til að láta berja sig. Svo verður afogtil fenginn hjúkka á staðinn til að marblettamæla og sauma dýpstu sárin og ef beinbrotin eru ekki of djúp fær barsmíðaseljan heilbrigðisvottorð og þá eru allir kátir.

Efnisorð: , , ,