laugardagur, apríl 14, 2012

Hvorki kostur né galli

Á jarðkúlunni eru nú 7 milljarðar manna. Hver einn og einasti þessara sjö milljarða jarðarbúa kom úr móðurkviði, og allir þeir milljarðar sem hafa byggt jörðina á undan okkur líka. Það er því hvorki sjaldgæft að kona gangi með barn né er það nýlunda. Mér er þessvegna fyrirmunað að skilja að einhverjum þyki það galli að kona sé barnshafandi og jafnskrítið þykir mér að óléttan sé talin henni til tekna. Það hlýtur að vera hægt að meta hæfi forsetaframbjóðanda eftir einhverjum öðrum mælikvarða.

Efnisorð: