Agnar krefst fyrir mína hönd
Mikið er það fantafín kröfugerð sem Agnar Kristján Þorsteinsson leggur fram á Stundinni í dag.
Öllu er ég sammála sem hann segir, en áttaði mig á að ég hafði næstum alveg gleymt þessu.
Takk, Agnar fyrir að rifja þetta allt upp, takk fyrir að vera reiður og koma því í orð.
Ég krefst þess að alþingi biðjist afsökunar á fyrirlitlegri framkomu Njáls Trausta Friðbertssonar, Pawel Bartoszeks, Hildar Sverrisdóttir og Haraldar Benediktssonar í garð fórnarlamba Róbert Downeys þegar þau gengu út af fundi stjórnskipunar- og eftirlitnefndar. Ég krefst þess einnig að alþingi biðjist afsökunar á tilraunum Áslaugar Örnu Sigurbjarnardóttir þegar hún reyndi að koma í veg fyrir að þingmenn myndu spyrja dómsmálaráðherra frekar út í mál Róbert Downeys.
Öllu er ég sammála sem hann segir, en áttaði mig á að ég hafði næstum alveg gleymt þessu.
Takk, Agnar fyrir að rifja þetta allt upp, takk fyrir að vera reiður og koma því í orð.
Efnisorð: Fjölmiðlar, frjálshyggja, hrunið, Innflytjendamál, kynferðisbrot, pólitík, sjálfstæðismenn, Viðreisn
<< Home