föstudagur, desember 09, 2011

Það myndi útskýra þetta alltsaman

Reiðibylgja skall á samfélaginu í gær við hina svívirðilegu árás Pressunnar á allar konur sem hugsanlega eiga eftir að standa í þeim sporum að kæra nauðgun. Í nokkra daga þar á undan hafði reyndar allt logað af rifrildum vegna kærumálsins sem óþarfi er að tíunda.

Nú langar mig að vita hvort allar þær konur sem hafa tekið þátt í umræðunni, og sérstaklega auðvitað þær sem hafa æst sig uppúr öllu valdi, hafi verið á túr?

Það væri voða almennilegt ef einhver karlmaðurinn gæti tekið að sér að svara þessu.

Efnisorð: