fimmtudagur, maí 31, 2007

Allt sem hann snertir verður óhreint

Merkilegt, eins og karlmönnum finnst tittlingurinn á sér merkilegur og aðdáunarverður, hvað allt sem hann snertir verður ógeðslegt. Konur sem komast í tæri við hann eru kallaðar niðrandi nöfnum - og því fleiri tittlingar því verri nafngiftir. Meira segja karlar sem innbyrða tittling hljóta líka fyrirlitningu annarra karla. Það að vera ‘á röngum enda’ tittlingsaðgerða er það versta sem fyrir getur komið, þá ertu annaðhvort kelling eða hommi.

Væri ekki nær að þessi töfrasproti gerði alla glaða og það væri upphafning að komast í tæri við þessa dásemd? Hommar væru karla kátastir og konur alger krútt? En nei, þau uppskera bara fyrirlitningu.

Efnisorð: