þriðjudagur, febrúar 05, 2019

Fokki Bergþór ofbeldismaður sér

Oft hef ég talað illa um Pírata á þessu bloggi. En ekki í dag.

Píratar voru í upphafi aðallega samansafn af strákum með frjálshyggjuhugmyndir sem höfðu netfrelsi sem nánast sitt eina markmið með þátttöku í stjórnmálum. Eftir að kjarnakonan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir settist á þing fyrir Pírata hefur komið annað hljóð í strokkinn. Hún er algjör yfirburðamanneskja í þessum flokk.

Í dag mótmælti hún svo í þingsal, í félagi við Björn Leví Gunnarsson samflokksmann sinn, og voru þau bæði klædd húfum merktum skammstöfuninni fyrir FOKK OFBELDI. Tilefnið var að eitt orðljótasta Klaustursvínið var mætt í pontu, sjálfur Bergþór Ólason. Að sjá þau sitthvoru megin við Bergþór með húfurnar er það besta sem hefur sést á Alþingi lengi.


DJÖFULL VAR ÞETTA GOTT HJÁ ÞEIM!

Efnisorð: ,