Kosningaúrslit 2021
Hér átti að koma pistill um úrslit kosninga. En þá kom fréttin um að búið væri að endurtelja í einu kjördæmi og það breytti öllu heila gillimojinu þannig að skipt er um fimm manns, þar af misstu þrjár konur nýfengið þingsæti og inn fara karlar í staðinn. Hin stóra frétt um fleiri konur á þingi en karla þar með orðin falsfrétt. Og nú gæti farið svo að endurtalningin verði kærð jafnframt því sem farið er fram á endurtalningu í öðru kjördæmi.
Það er semsagt Trumpískt ástand og alls óljóst hvort eða hvenær því lýkur.
Alveg var það þetta sem við þurftum helst!
Efnisorð: kosningar
<< Home